Lánað og skilað
Á áætlunLánað og skilað
Haltu utan um hluti sem þú hefur lánað eða fengið að láni, án þess að þurfa að muna þetta sjálf/ur.
Vandinn
Bækur, verkfæri, barnadót, föt, hleðslutæki og allt hitt sem fer á milli fólks hverfur oft bara inn í hversdaginn. Svo man enginn alveg hver fékk hvað, hvenær það átti að skila því eða hvort það sé vandræðalegt að minna á það.
Möguleg lausn
Einfalt yfirlit yfir hluti sem þú hefur lánað eða fengið að láni. Skráðu hlutinn, manneskjuna og skiladag ef hann er til. Teskeið getur sent áminningu þegar tími er kominn til að skila eða biðja fallega um að fá hlutinn aftur.
Aðrar hugmyndir
Allir þessir póstar
Safnar póstum og skilaboðum frá skóla, Mentor, Abler og tómstundum í eitt einfalt yfirlit.
Maki / kæró
Hjálpar pörum að rækta sambandið, prófa eitthvað nýtt saman og muna að hlúa að hvort öðru.
Gjafir og óskir
Óskalistar og gjafasaga fyrir fjölskyldur, svo það sé auðveldara að vita hvað á að gefa og hvað var gefið síðast.
Fyrsta vakt krakkanna
Krakkar safna stigum fyrir heimilisverk og fá sitt fyrsta bragð af ábyrgð, umbun og eigin vakt.
Útlagt og endurgreitt
Haltu utan um það sem þú leggur út fyrir aðra, hvað er búið að endurgreiða og hvað er enn opið.
Heimilið
Dreifðu heimilisstörfum á fjölskylduna á sanngjörnum og gagnsæjan hátt.
Afmæli og viðburðir
Settu inn aldur, áhuga, fjölda gesta og budget og fáðu hugmyndir að viðburði sem passar við tilefnið.
Sagan okkar
Lifandi lífssaga sem byggist upp smátt og smátt, með sögum, myndum, stöðum og augnablikum úr lífinu.
Umönnun
Umönnun er nú þegar til á umonnun.is. Hún tekur eitt mikilvægt atriði úr öllu hinu og setur það á einfaldan stað.
Mótavaktin
Heldur utan um sjoppuvaktir, gistivaktir, akstur og önnur foreldrahlutverk í kringum mót og viðburði barna.
Gæludýravaktin
Halda utan um fóðrun, gönguferðir og dýralæknaverð gæludýrsins.
Þriðja vaktin
Lausn í mótun fyrir verkefni og ábyrgð sem safnast upp utan hins sýnilega skipulags.
Út að leika
Sendu leikboð á barnið, ekki á rétta foreldrið. Kerfið finnur hver er með barnið hverju sinni.
Alvöru tilboð
Bara góð tilboð. Beint á vöruna. Engin leit að vöru sem reynist svo auðvitað vera uppseld.