Allir þessir póstar
HugmyndBörn
Safnar póstum og skilaboðum frá skóla, Mentor, Abler og tómstundum í eitt einfalt yfirlit.
Vandinn
Foreldrar fá endalausa pósta og tilkynningar. Skólinn sendir eitt, Mentor annað, Abler eitthvað þriðja og svo koma skilaboð frá íþróttum, tónlistarskóla og bekkjarfulltrúum. Það er erfitt að sjá hvað skiptir máli, hvað þarf að gera og hvað má bíða.
Möguleg lausn
Teskeið sem tekur allt þetta inn á einn stað, flokkar það og sýnir hvað þarfnast athygli. Ekki enn eitt pósthólf, heldur einfalt yfirlit yfir það sem tengist börnunum og daglega lífinu.
Aðrar hugmyndir
Lánað og skilað
Haltu utan um hluti sem þú hefur lánað eða fengið að láni, án þess að þurfa að muna þetta sjálf/ur.
Maki / kæró
Hjálpar pörum að rækta sambandið, prófa eitthvað nýtt saman og muna að hlúa að hvort öðru.
Gjafir og óskir
Óskalistar og gjafasaga fyrir fjölskyldur, svo það sé auðveldara að vita hvað á að gefa og hvað var gefið síðast.
Fyrsta vakt krakkanna
Krakkar safna stigum fyrir heimilisverk og fá sitt fyrsta bragð af ábyrgð, umbun og eigin vakt.
Útlagt og endurgreitt
Haltu utan um það sem þú leggur út fyrir aðra, hvað er búið að endurgreiða og hvað er enn opið.
Heimilið
Dreifðu heimilisstörfum á fjölskylduna á sanngjörnum og gagnsæjan hátt.
Afmæli og viðburðir
Settu inn aldur, áhuga, fjölda gesta og budget og fáðu hugmyndir að viðburði sem passar við tilefnið.
Sagan okkar
Lifandi lífssaga sem byggist upp smátt og smátt, með sögum, myndum, stöðum og augnablikum úr lífinu.
Umönnun
Umönnun er nú þegar til á umonnun.is. Hún tekur eitt mikilvægt atriði úr öllu hinu og setur það á einfaldan stað.
Mótavaktin
Heldur utan um sjoppuvaktir, gistivaktir, akstur og önnur foreldrahlutverk í kringum mót og viðburði barna.
Gæludýravaktin
Halda utan um fóðrun, gönguferðir og dýralæknaverð gæludýrsins.
Þriðja vaktin
Lausn í mótun fyrir verkefni og ábyrgð sem safnast upp utan hins sýnilega skipulags.
Út að leika
Sendu leikboð á barnið, ekki á rétta foreldrið. Kerfið finnur hver er með barnið hverju sinni.
Alvöru tilboð
Bara góð tilboð. Beint á vöruna. Engin leit að vöru sem reynist svo auðvitað vera uppseld.